Vörur
Efinin okkar
Þakverk býður upp á alhliða þjónustu í þakpappalögnum og sérhæfir sig í varanlegum lausnum fyrir allar gerðir þaka, hvort sem um er að ræða timburþök, viðsnúin þök eða heit þök. Með yfir 15 ára reynslu í faginu tryggjum við vönduð vinnubrögð og notum eingöngu viðurkennd þakefni frá IKO.
Þaklausnir
Þakverk sérhæfir sig í þaklausnum og býður upp á hágæða þakdúka og tengdar vörur fyrir fjölbreyttar gerðir þaka. Við erum með efni sem henta meðal annars fyrir eftirfarandi þakgerðir:
- Timburþak
- Viðsnúið þak
- Viðsnúið þak með torfi/hellum
- Viðsnúið þak með bílastæði
- Heitt þak clt
- Heitt þak steypt
Rakasperrur
Þakverk er viðurkenndur þakverktaki frá IKO sem er framleiðandi þakpappans sem við notum.
IKO shield ALU3 T/F
SBS bættur rakasperru-asfaltdúkur með 65 gr/m2 ál-glertrefjamottu. Þessi dúkur er sérstaklega ætlaður sem rakasperra.
Annað:
Þessi dúkur hentar sem rakasperra fyrir byggingar í flokki IV (Indoor Climate Class) sem þýðir að hann má nota sem rakasperru á til dæmis sundlaugar, þvottahús, prentsmiðjur o.s.frv.
Upplýsingum um vöru var skilað inn til Svansins í samræmi við gildandi byggingarviðmið (nýbyggingar og endurbætur) og er hún samþykkt til notkunar í verkefnum sem vinna eftir þeim viðmiðum. Varan er ekki Svansvottuð.
IKO shield PRO ALU/SA
SBS bættur rakasperru-asfaltdúkur með 150 gr/m2 ployester-glertrefja styrktarmottu. Efra yfirborð dúksins er álfilma og neðra yfirborðið er sjálflímandi asfalt. IKO shield PRO ALU/SA hentar mjög vel sem rakasperra á trapisueiningar.
Annað:
Þessi dúkur hentar sem rakasperra fyrir byggingar í flokki IV (Indoor Climate Class) sem þýðir að hann má nota sem rakasperru á til dæmis sundlaugar, þvottahús, prentsmiðjur o.s.frv.
Upplýsingum um vöru var skilað inn til Svansins í samræmi við gildandi byggingarviðmið (nýbyggingar og endurbætur) og er hún samþykkt til notkunar í verkefnum sem vinna eftir þeim viðmiðum. Varan er ekki Svansvottuð.
Undirlög
IKO base P4000 SBS T/F

Annað:
Þessi dúkur er hluti af útfærslu fyrir þök á timburklæðningu.
Upplýsingum um vöru var skilað inn til Svansins í samræmi við gildandi byggingarviðmið (nýbyggingar og endurbætur) og er hún samþykkt til notkunar í verkefnum sem vinna eftir þeim viðmiðum. Varan er ekki Svansvottuð.
IKO base P4 SBS T/F
SBS bættur asfaltdúkur (þakpappi) með 140 gr/m2 polyester styrktarmottu. Þessi dúkur hentar mjög vel sem undirlag í viðsnúnu þakkerfi.
Annað:
Þykkt: 4 mm
Þyngd: 38 kg
IKO powerflex 5000 T/F
SBS bættur asfaltdúkur (þakpappi) með 180 gr/m2 polyester-glertrefja styrktarmottu. Dúkinn má nota sem undirlag eða topplag í viðsnúnum þakkerfum.
Annað:Þykkt: 3,8 mm
Þyngd: 39 kg
Stærð rúllu: 8x1m
IKO powerflex 5000 T/F er á lista yfir vörur sem má nota á svansvottaðar byggingar.
Topplög
IKO powerflex 4 T/F ICE
SBS bættur asfaltdúkur með 180 gr/m2 polyester-glertrefja styrktarmottu.
Annað:
Þykkt: 4 mm
Þyngd: 41,5 kg
Stærð rúllu: 8×1
IKO powerflex 4 T/F ICE er á lista yfir efni sem eru leyfileg til notkunar í svansvottuðum byggingum.
Yfirlög
IKO powerflex 4 AD/F ICE
SBS bættur asfaltdúkur (þakpappi) með 180 gr/m2 polyester-glertrefja styrktarmottu. IKO powerflex 4 AD/F ICE er UV-þolinn yfirlagsdúkur með dökk gráum steinmulningi.
Annað:
Þykkt: 4,2 mm
Þyngd: 47,5 kg
Stærð rúllu: 8×1
IKO powerflex 4 AD/F ICE er á lista yfir efni sem eru leyfileg til notkunar í svansvottuðum byggingum.
IKO pantera

Annað:
IKO pantera er sterkasti yfirlagsdúkur sem er í boði hjá IKO. Polyester-glertrefjamottan er 250 gr/m2 og togstyrkur því mikill, 1300/1000 N
IKO carrara

Annað:
IKO carrara er sérstaklega hannaður með sjálfbærni og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.
Dúkurinn breytir NOx (köfnunarefnisdíoxíð) og SOx (brennisteinsdíoxíð) í efni sem eru skaðlaus umhverfinu.
Hvíta yfirborðið á IKO carrara heldur þakyfirborðinu köldu. Það þýðir að byggingin hitnar minna og orkuþörf verður minni. Hentar mjög vel á þök gagnavera og bygginga þar sem kæliþörf er mikil.
Rótarvarinn pappi
IKO roofgarden 4 SBS AD/F

IKO powerflex 4 T/F WW ICE
Rótarþolinn SBS bættur asfaltdúkur með 180 gr/m2 polyester-glertrefja styrktarmottu.
Annað:
Þykkt: 4 mm
Þyngd: 41,5 kg
Stærð rúllu: 8×1
Rótarþolinn
IKO powerflex 4 T/F ICE er á lista yfir efni sem eru leyfileg til notkunar í svansvottuðum byggingum.
Pappi undir malbik
IKO polybridge 4 T/F
APP bættur asfaltdúkur (þakpappi) með 240 gr/m2 polyester-glertrefja mottu sérstaklega ætlaður sem dúkur undir malbik. Hentar mjög vel á brýr, vegi og önnur malbikuð mannvirki.
Annað:
Þykkt: 4 mm
Þyngd: 49,5 kg
Stærð á rúllu: 11x1m
IKO polybridge 5 T/F
APP bættur asfaltdúkur (þakpappi) með 280 gr/m2 polyester-glertrefja mottu sérstaklega ætlaður sem dúkur undir malbik. Hentar mjög vel á brýr, vegi og önnur malbikuð mannvirki.
Annað:
Þykkt: 5 mm
Þyngd: 55 kg
Stærð á rúllu: 10x1m
Festingar
Dýfflur í stein
ASTL 70-90
ASTL 90-130
ASTL 130-170
ASTL 160-250
ASTL 230-340
ASTL 340-460
ASTL 460-560
Dýfflur í clt & sTÁL

Festingar í timburþök

Annað:
Lengd á festingu: 35 mm eða 45 mm
Magn í kassa: 250 stk eða 1000 stk
Niðurföll
IKO power Drain H

IKO power Drain V

KLÖBER

Eterno

Drendúkar
Nophadrain NDIR
Nophadrain ND4+1h
Nophadrain ND620hd
Nophadrain NDIR er drendúkur sérstaklega ætlaður sem drendúkur undir XPS á viðsnúnum þökum. Dúkurinn býr til drenlag á milli einangrunarinnar og vatnsvarnarlagsins og kemur í veg fyrir að uppsöfnun vatns á milli laganna. Dúkurinn er samansettur úr þremur dúkum, (1) óofinn geotextíll, (2) takkadúk og (3) aðskilnaðarlagi sem skilur að þakdúkinn og plastefni takkadúksins.
Annað:
Þrýstistyrkur: 500 kPa
Hæð takka: 5 mm
Drendúkarnir frá Nophadrain eru framleiddir úr endurunnu HIPS efni (High Impact Polystyrene) sem er með þá sérstöðu gagnvart HDPE efni (High Density Plyethilene) að það heldur upprunalegu formi sínu mun betur sem tryggir háa langtíma afrennslisgetu.
Upplýsingum um vöru var skilað inn til Svansins í samræmi við gildandi byggingarviðmið (nýbyggingar og endurbætur) og er hún samþykkt til notkunar í verkefnum sem vinna eftir þeim viðmiðum. Varan er ekki Svansvottuð.
Nophadrain ND4+1h er drendúkur undir gróður á grænum þökum og þakgörðum. Dúkurinn samanstendur af þremur dúkum: (1) jarðvegsdúk, (2) bolladúk og (3) jarðvegsdúk. Nophadrain ND 4+1h er sérstaklega ætlaður sem dúkur undir gróður þar sem hann safnar vatnsforða (4,3 l/m2) ásamt því að lofta og drena í gegnum sig.
Annað:
Þrýstistyrkur: 450 kPa
Hæð takka: 15,5 mm
Drendúkarnir frá Nophadrain eru framleiddir úr endurunnu HIPS efni (High Impact Polystyrene) sem er með þá sérstöðu gagnvart HDPE efni (High Density Plyethilene) að það heldur upprunalegu formi sínu mun betur sem tryggir háa langtíma afrennslisgetu.
Upplýsingum um vöru var skilað inn til Svansins í samræmi við gildandi byggingarviðmið (nýbyggingar og endurbætur) og er hún samþykkt til notkunar í verkefnum sem vinna eftir þeim viðmiðum. Varan er ekki Svansvottuð.
Nophadrain ND620hd er drendúkur sem er sérhannaður á öll þau svæði sem þurfa að þola umferð þungra ökutækja. Hentar vel sem drenlag undir steypu eða malbik á þakgörðum eða bílastæðum. Það sem einkennir ND620hd dúkinn er 1200 kPa þrýstistyrkur og trefjamottan sem er á efra yfirborði dúksins. Trefjamottan sér til þess að veita dúknum vörn gegn því álagi sem hann verður fyrir og ekki síst á meðan framkvæmd stendur yfir.
Annað:
Þrýstistyrkur: 1200 kPa
Hæð takka: 12 mm